Ætti maður að reyna uppá nýttJúlíanna

Veit ekki af hverju en ég fékk alveg óstjórnlega löngun til þess að byrja að blogga aftur. Skoða ein ja 60 blogg á dag og finnst ég alveg hafa eitthvað að seigja líka.

Tobbi er nú búin að vera í Grindavík síðan í byrjun jan og ég hef leikið einstæða mömmu síðan, einstæðar mömmur eiga hrós skilið er ekki að meika þetta held að aðalásæðan sé kanski af því að ég sakna kallsins en börnin mín eru vægast sagt mjööööööög hress. Einar Ólafur seigir allt sem honum dettur í hug og oftar en einusinni hefur hann fengið mömmu sína til að roðna niður í tær þegar honum dettur í hug að spjalla við fólk.
ÍSabella þessi rólyndis krakki er sko ekki mjög róleg í dag hún gefur gaurunum ekkert eftir og lætur þá finna fyrir því og klagar í gríð og erg.
Benedikt er byrjaður í skóla  , heimalærdómurinn er nú ekki það mest spennandi og þakka ég guði fyrir það að hann þarf aðeins að lesa heima 2 í viku og eeeekkert annað.

Ég og linda vorum að ræða það hvað mömmur okkar hafi eiginlega gert þegar við vorum krakka  mér fannstd aldrey einsog mömmu minni leiddist. Alltaf á fullu að gera ekkert ef ég má orða það þannig. Við linda vælum í kross yfir því hvað okkur leiðist og dettur ekkert í hug nema tölvan til að lina mestu þjáningarnar,ekki hékk  mamma mín í tölvunni þegar ég var barn og gerir ekki enn. Held að ég hafi bara svei mér ekki fengið mikið af húsmóður genum í fæðingar gjöf og hér mér lísi ég eftir einhverju hobbý sem ég get stundað þó ég sé ein með 3 orma og í tveimur vinnum.

Að lokum þá ætla ég að gefa sjálfri mér loforð um það að skrifa hérna inn allavega annan hvern dag og sjá hvort ég geti staðið við það . tjá júlla

Það er ekki hægt að hætta :)Júlíanna

Þar sem það er mikið að gera hjá mér á stóru heimili þessa stundina þar sem kallinn er á sjó þá hef ég bara einfaldlega ekki tíma né orku í það að skrifa einhvern rosa pistil hér. En ég verð bar að benda ykkur á þetta blogg http://toothsmith.blogspot.com/  Aðra eins snilld hef ég ekki lesið  þvílíkt og annað eins allavega góða skemmtun veriðið ekki svikin af þessari.


SVO ÞÆTTI MÉR VÆNT UM AÐ ÞIÐ SEM(EF EINHVER) LESIÐ EINHVERNTÍMAN BLOGGIÐ MITT ÞÁ PLÍS SKRIFA Í COMMENT EÐA GESTABÓK:):):) þAÐ ER EKKI BANNAÐ KV JÚLLA

Bara flott !!Júlíanna

Langar svo að benda ykkur á síðuna hjá litlu frænku minni  www.lenusdesign.tk þetta eru vörur sem hún hannar og býr til og selur, hún er svo hæfileikarík og frábær endilega kíkjið á þetta. Er svo óendanlega stollt af henni go hvet ykkur til þess að panta hjá henni eitthvað ef þið fílið eitthvað af vörunum hennar.

Lena veit ekki að ég ætla að setja þetta hér en vona að hún verði ekki reið við migHlæjandi bara verð að deila þér með öðrum Lenan mín.

Var búin að skrifa alveg ógeðslega mikið og það datt út!!Júlíanna

Djö *$Q%$# helv&#*&

Ég er komin heim í heiðardalinn ég er komin heim í .......Júlíanna

Jújú einsog þið flest vitið eignuðumst við Thorberg heilbrigða 14 marka og 51 cm stúlku á settum degi 21.mai og ku það vera 3 barnið mitt sem ég eignast( og síðasta) á settum degi.  LItla daman var nú tekin með keisara eftir að hún var búin að pína mömmu sína aðeins en sú stutta var sko ekkert á leiðinni út nennti sko ekkert að standa í þessu neitt, bara láta sækja sig og hana nú(sagði hænan og lagðist á bakið)

Sú stutta fékk nafnið Ísabella Eir og er rosa vær og góð, Tobbi fór með stráka grislingana í sveit fyrir vestan og leikur nú einstæðan faðir og er ég alveg viss um að hann á eftir að skilja konur alveg ótrúlega vel eftir þá lífsreynslu hehe.  Ég fór heim til mömmu á föstudaginn og er þar í góðu yfirlæti ásamt Ísabellu en tobbi ætlar að vera í sveitasælunni fram á sunnudag.

Ég hef nú ekki mikið meira að segja vildi bara láta vita af mér og mínum en endilega kíkjið  á síðunna hjá nýjasta fjölskyldumeðlimnum(*ROÐN*)   www.isabella-eir.barnaland.is og endilega skiljið eftir kveðju svo ég viti hver er að kíkja :)

Ætla að reyna að skrifa reglulega allavega þegar ég kemst í tölluna hjá pabba þar sem tölvurnar okkar tobba eru báðar í sveitinni:(  Svo set ég einnig inn fyrstu myndirnar af Ísabellu og reykjavíkurmyndirnar þegar tölvurnar skila sér með Strákunum mínum

KV júlla

Allar konur elska súkkulaði er það ekki???Júlíanna

Súkkulaðialdur þinn!

Uss það er ekki einu sinni hægt að ljúga lengur.......



Þetta er algjör snilld!! Þið verðið að prófa!
ekki svindla


SÚKKULAÐIALDUR ÞINN


Konur segja oft rangt til um aldur --
en súkkulaðialdurinn lýgur ekki! Það
sannast hér með.

Ekki svindla með því að kíkja neðst --
þetta tekur bara mínútu, þú svarar
jafnóðum og þú lest. Þetta er ekki
tímaeyðsla, heldur bara gaman!

Ég ráðlegg þér þó að hafa reiknivél og
nota hana jafnóðum.


1. Veldu tölu fyrir þau skipti vikunnar
sem þig langar í súkkulaði (oftar en
einu sinni en þó sjaldnar en 10 sinnum)







2. Margfaldaðu þessa tölu með 2









3. Bættu við 5






4. Margfaldaðu þetta með 50 -- ég bíð
meðan þú sækir vasareikninn, ef þú ert
ekki með hann nú þegar









5. Ef þú ert búin að eiga afmæli á
þessu ári bætirðu við 1756 ....
Ef ekki bættu þá við 1755.








6. Dragðu nú frá þessari tölu ártalið
sem þú fæddist (fullt fjögurra stafa
ártal)
Þú ættir að fá þriggja stafa tölu







Fyrsta talan er sú tala sem þú valdir
fyrst yfir þau skipti vikunnar sem þig
langar í súkkulaði.






Næstu tvær tölur eru ....






ALDUR ÞINN (JÚ, VÍST !!!!)
ÞETTA MUN VERA EINA ÁRIÐ (2006) SEM
ÞESSI REIKNIKÚNST GENGUR UPP MEÐ ÞESSUM
HÆTTI.
_______________________________

Bara svona til gamans en ótrúlegt en satt þá gekk þetta upp furðulegt.

FALSE ALARME!!!!!!!!!!!!!!!Júlíanna

Þær konur sem hafa gengið í gegnum meðgöngu skilja mig líklega mjög vel en þið hinar sem hafið ekki gengið í gegnum það, skiljið þetta allt svo vel þegar það kemur að ykkur.

Ég get svo svarið fyrir að ég nenni þessu ekki lengur ekki sekúntu lengur get svo svarið fyrir að mig langar bara út að labba þangað til krílið kemur.
Ég vakti til 4 í nótt með alveg þvílíka verki og þó að þetta sé mitt 3 barn var ég bara alls ekki viss hvort það væri bara komið að þvi eða ekki.  En ég hugsaði samt með mér að þar sem þetta er skinsamt lítið kríli þá gerir það mömmu sinni það ekki að fæðast hérna á vopnafirði af öllum stöðum.  Við ætlum að leggja af stað suður á laugardaginn og stoppa í Borganesi fram á mánudag. Og eftir það má prinsessan kíkja í heiminn.

Mér finnst rosalega mikið svindl hvað allir eru búinir að fá gott veður bara búið að vera skítaveður hér ekta gluggaveður sól og blíða og skítakuldi.  Svo klína þeir myndum af fólki á naríunum(liggur við) í öll blöð og í alla fréttaþætti, já rub it in!!! Hérna var sko sólskinog gott veður í gær í skítafílu og snjókomu, þoli ekki helvítis fíluna úr bræðslunni hérna í hvert skipti sem veðrið verður gott hlaupa þeir niðri bræðslu og bræða kasúldin fisk bara fyri migGráta.

Jæja kanski ég hætti áður en ég fer bara að grenja greinilega ekki minn dagur, en þó eitt jákvætt við gærdaginn ég grillaði alveg dýrindis mat ójá ég elska grill mat bara verst að nú er ég komin í strangt aðhald eftir smá stund allavega eftir að barnið fæðist þannig að kanski bar bara alltí lagi að ég borðaði alltof mikið af kaloríum í gær.

Jæja ætla að finna mér eitthvað fitandi og gott að éta þangað til næst TATA júlla

FJÖRHJÓL FJÖRHJÓLJúlíanna

Jú hvað haldið þið við hjónaleysin keyptum okkur Fjórhjól eða fjörhjól einsog Benedikt kallar það. Enda er kallinn ekki búin að vera heima í allan dag og ég sver að ef hann mætti þá myndi hann sofa með hjólið  við hliðin á sér.Strákarnir okkar fengu að prófa og urðu þeir alveg sjúkir, þegar ég fór inn til mömmu þá náði Einar í hjálminn hans Hafliða og hékk vælandiGráta utan í útihurðinni þangað til ég leyfði honum að fara út aftur . Þar sem annar hver maður hér á fjórhjól og það eru alltaf fjórhjólaferðir hérna þá þurftum við náttúrulega lika að fá okkur eitt.

Það besta er að nú höfum við eitthvað til þess að gera saman og hlakka ég til þegar ég fæ að stýra og Tobbi situr aftan á heheHlæjandi Kallinn er nefnilega ekki alltof öruggur þegar kvennmaður er undir stýri aumingja hann múhaha.

Fór áðan og skoðaði litlu monsuna hjá Soffíu og Mannsa úff ég varð alveg veik öfunda Soffíu svo mikið að vera búin að þessu. Langaði bara að taka hana með mér heim og fara í mömmu leik, enda alveg gullfalleg stelpa þar á ferð.

Mig langar suður núna að sækja mína prinsessu já ég sagði sækja ég ætla bara að kíkja á fæðingardeildina og skoppa henni út hehe, verður maður ekki að vera bjartsýnn ;););)

Jæja læt þetta nóg í bili tata júlla

JaháJúlíanna

Jújú er þetta ekki það heitasta bloggar .is. Er alveg búin að missa áhugann á blogcentral síðunni minni þannig að ég ákvaða að prufa þessa kanski nenni ég að blogga frekar.

Ég get svo svarið fyrir það ekki nema 12 dagar í litlu bleiku prinsessuna okkar :) Tobbi er samt alveg viss um að það komi 3 strákurinn en ég skal sko sína honum að það er ekki rétt. Við ætlum suður núna á laugardaginn með strolluna í eftir dragi Benedikt verður hjá pabba sínum á meðan við erum fyrir sunnan og Einar verður bara hjá okkur.

Ég kvíð reyndar soldið fyrir að keyra alla þessa leið en kanski hjálpar það bara til að stelpan komi á réttum tíma þvi ég ætla sko ekki að bíða degi lengur en 21. mai punktur og pasta. Það væri gaman ef þið mynduð setja dagsetninguna sem þið haldið að prinsessan líti dagsins ljós hérna í komment og sjá hvort einhver hefur rétt fyrir sér.

Ætli ég þurfi ekki að læra að setja mundir inn og svona ég er sko ekki mjög tæknivædd skal ég segja ykkur er meira segja að reyna að setja inn tengla oh ég er svo fötluð í þessu öllu einhver sem nennir að hjálpa PLÍÍÍÍS.

Annars er ekki mikið að frétta héðan tobbi á grásleppu og ég já ég er bara að bíða eftir barninu og reyna að hvíla mig hvað svo sem það þíðir. Fór á konukvöld á laugardaginn og það var alveg ágætt svosem en soldið langtr að sitja í rúma 3 tíma.  Var nefnilega svo heppinn að strákarnir vöknuðu 7 þann morguninn og  kl 14 var barnaafmæli hjá Benedikt Blæ þannig að ég var alveg búin loksins þegar konukvöldið byrjaði.  SVo var náttúrulega hápunktur kvöldsins stripp atriðið í endan herregud ég get svosem ekki sagt að það hafi verið mest sexý gaurarnir á svæðinu ,Hafþór kennari, ási , jói Róberts, og flr held að ég þurfi ekki að segja meira  hehe en samt gaman af þessu.

Jæja kanski ég halli mér örlítið í sófanum og skoði augnlokin að innan alltaf jafn ljúft og láti mig dreyma og gull og græna skógaGlottandi
 Þangað til næst sem verður vonandi á næstunni elskið friðinn og strjúkið kviðinn

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Leit

Könnun

Hvaða mánaðardag lítur prinsessan mín dagsins ljós??

MSN-ið mitt

julianna81@msn.com

Gagnasafn